drengsson pics

 
  • Increase font size
  • Default font size
  • Decrease font size

Þjónustan

drengsson pics er lítið framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í allskyns media lausnum - hratt og öruglega.
Einkunnarorð okkar er að ekkert verkefni er of lítið - eða of stórt, ef út í það er farið.

Eitt stærsta verkefnið okkar hingað til er 5tindar. 5tindar er verkefni þar sem hópur manna gengu á hæsta fjall í hverjum landshluta á einni helgi til styrktar Sjónarhóls, samtök fyrir langveik börn. Heimildarmyndin var svo sýnd á Skjá Einum.

Núna erum við í eftirvinnslu á heimildarmynd um för nokkura 5tinda manna á Mont Blanc.

Verkefni okkar eru ekki öll á svona stórum skala. Það má auðvitað nefna minni verkefni eins og: brúðkaup, steggja- og gæsaparty, upptökur af fundum, alskonar íþróttaviðburðir, auglýsingar og margt fleira.

Allt video efni sem við framleiðum getur komið til ykkar á hvaða sniði sem er, frá hrárri upptöku og upp í dvd disk með tilheyrandi valmyndakerfi.

Við erum ekki einungis í videolausnum, heldur einnig í allri prentuppsettningum (td auglýsingar, bæklingar og matseðlar), uppsettningar á heimasíðum og lengi má telja.

Hikið ekki við að hafa samband og heyrið hvað við getum gert fyrir ykkur.

Stefán Drengsson
drengsson pics