
drengsson pics er stofnað af Stefáni Drengssyni en hann er með BA gráðu í margmiðlunarnámi með áherslu á kvikmyndagerð og -fræði við Háskólann í Skövde í Svíþjóð.
Náminu lauk með lokaverkefni sem var stuttmynd. Myndin var tekin upp á Íslandi í febrúar 2006 og heitir Örlög. Á árlegri keppni sem nemendur á öðru ári halda fyrir nemendur á þriðja ári, vann myndin 5 verðlaun; besta leikstjórn, besta hljóð, besta lýsing, bestu tæknibrellur og besti leikur.
Eftir námið kom Stefán Drengsson aftur heim til Íslands og stofnaði drengsson pics og fyrsta verk þeirra var heimildarmyndin 5tindar.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og mörg verkefni legið í valnum.


